Kvikmyndir og þættir

Kvikmyndir og þættir

Kvikmyndir og þættir haus 1

Horft um öxl

26. apríl 2007 · Engin ummæli

Þá er komið að því að gera upp og fara yfir hvað hefur verið fjallað um. Til að byrja með skulum við rifja upp hvert markmiðið var:

“Í bloggfærslunum mínum ætla ég að fjalla um nýjar kvikmyndir og þætti. Farið verður yfir það í stuttu máli um hvað umfjöllunarefnið hverju sinni er og hverjir leika.”

Þetta sýnist mér hafa tekist ágætlega þrátt fyrir að bíómyndirnar hafi skipað mun veiga meiri sess hér. Allt í allt hef ég skrifað um 13 bíómyndir og 1 þáttaseríu. Það vildi reyndar ekki betur til en svo að þáttaseríunni (Rome) var frestað og þurftu framleiðendurnir að hraðsjóða enda á seríuna sem bitnaði mjög á gæðum síðasta þáttarins.

Bíómyndirnar voru hinsvegar margvíslegar og fjölbreyttur leikarahópur á bak við þær. Sá leikari sem ég man eftir að hafi leikið í meira en einni af þessum myndum er “Ben Stiller” sem lék bæð aðalhlutverk í myndinni “Night at the Museum” og géstahlutverk í myndinni “Tenacious D in :The Pick of Desteny”. Af þessum 13 bíómyndum mundi ég segja að þrár þeirra hafi verið slakar (The Sentinel, The New World og Happy Feet), fimm þeirra verið miðlungs (Monster Hous, My Super Ex-Girlfriend, The Devil Wears Prada, Tenacious D in: The Pick of Destiny og TMNT), ein nokkuð góð (Night at the Museum) og fjórar mjög góðar (Pan’s Labyrinth, 300, The Illusionist og Stranger than Fiction).

Þegar hörft er yfir leikarahópinn mundi ég segja að “Ivana Baquero” úr “Pan’s Labyrinth”, “Gerard Butler” úr “300″, “Will Ferrell” úr “Stranger than Fiction” og “Edward Norton” úr “The Illusionist” hafi átt stærstan leiksigur af leikurunum úr þessum hópi. Hins vegar spyr maður sig hvort að “Ben Stiller” sé að missa hæfileikana því myndirnar með honum eru farnar að dala. Mér fannst samt afskaplega vænt um að fá að sjá “Dick Van Dyke” aftur á hvíta tjaldinu. Einnig er ég farinn að efast um að “Jack Black” verði nokkurtíman virkilega góður aðalleikari þrátt fyrir ótvíræða hæfileika í aukahlutverkum. “Kiefer Sutherland” var ekki að standa sig í “The Sentinel” og var þar einskonar bónus útgáfa af “Jack Bauer”. Ekki er heldur hægt að hrósa “Michael Douglas”, meðleikara hans, sem mér finnst alltaf vera fastann í sömu persónunni.

Af leikstjórum og handritshöfundum er það að segja að ég held að “Terrence Malick” ætti að hætta að leikstýra og fara að mála. Ég bíð alltaf spenntur eftir verkum “Guillermo del Toro” því þar er alltaf eitthvað á ferð fyrir augað þó að söguþráðurinn sé oft ekkert sérlega þykkur. Einnig virðist allt verða að gulli sem “Frank Miller” snertir þessa dagana þannig að ég bíð bara spenntur eftir því hvað kemur næst og hlakka til að sjá hvort hann nái að halda sér á floti áfram. “George Miller” ölli mér vonbrigðum með “Happy Feet” og ætla ég að vona að hann gefi eitthvað betra frá sér næst. Svo vil ég enda á að minnast á “Marc Forster” sem er sífellt að vaxa í áliti hjá mér. Ég mun fylgjast grant með honum í framtíðinni.

Eins og sjá má virðist kvikmyndaheimurinn ekki alveg af baki dottin þrátt fyrir mikið að slökum myndum í fyrra og lítur allt út fyrir að það sé ekki enn búið að gera allt þegar kemur að hvíta tjaldinu. Ég vil líka þakka þeim sem hafa tjáð sig og minni á að sjálfsögðu er eingöngu um mína skoðun að ræða hér og er öllum velkomið að viðra sitt álit hér líka.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Stranger Than Fiction

23. apríl 2007 · Engin ummæli

Stranger Than Fiction“Stranger Than Fiction” sem leikstýð var af “Marc Forster” er dramatísk gamanmynd um starfsmann hjá skattinum. Hann lifir frekar tilbreytingarlitlu lífi og er fastur í litlausri rútínu þar til hann fer að heyra í sögumanni lýsa lífi sínu. Það sem gerir málið enn verra er að hann einn heyrir í þessum sögumanni en getur þó ekki talað við hann til baka. Þessi reynsla fer sífellt að hafa víðtækari áhrif á líf hans og loks dauða. Myndin inniheldur fyrsta flokks leikara á borð við “Will Ferrell”, “Emma Thompson” og “Dustin Hoffman”.

“Stranger Than Fiction” er einstaklega vel leikin og skemmtilega úthugsuð mynd. Þetta er ein af þessum einstöku myndum sem getur fengið fólk til að hlæja og gráta í einu. Fyrirfram átti ég von á ágætis mynd og hún stóð fyllilega undir því. Þetta var falleg mynd með góðan boðskap.

Ég mæli með þessari mynd fyrir alla. Þetta ætti að vera góð mynd til að sameina fjölskyldur fyrir framan sjónvarpið svo allir geti verið sáttir.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Happy Feet

15. apríl 2007 · 3 ummæli

Happy Feet“Happy Feet” sem leikstýrð er af “George Miller” er dans og söngvamynd í þrívídd og fjallar um mörgæs sem fæðist öðruvísi en allar hinar og mætir því fordómum og skilningsleysi. Heimur mörgæsanna snýst um söng en þessi unga mörgæs getur ekki sungið en hefur hins vegar hæfileika til að dansa. Leiklesarar myndarinnar eru flestir stór Hollywood nöfn.

“Happy Feet” er mjög vel útfærð myndrænt og ekki hægt annað en að dást af því hversu vel hún er gerð þannig. Einnig hefur ekki verið leitað til neinna nýgræðinga til þess að sjá um leiklestur í myndinni og er heldur ekki yfir neinu að kvarta þar. En þá eru líka gullhamrarnir endanlega upptalnir. Myndinni skortir frumleika og er ekkert lag samið sérstaklega fyrir myndina þrátt fyrir það að söngurinn eigi einna stærsran þátt í myndinni. Söguþráðurinn er illa úthugsaður. Myndin byrjar sem létt söngvamynd sem fær svo sífellt þyngri undirtón þar til hann er orðinn að aðalatriði. Í endan er myndin orðinn eins og illa ígrundaður grænfriðungaáróður sem bíður ekki upp á neinar tillögur til lausnar. Þegar myndin var tæplega hálfnuð var ég farinn að bíða eftir endanum. Ég get hreint ekki ímyndað mér að krakkar endist yfir þessari mynd til enda.

“Happy Feet” er mynd sem ég held að rati ekki aftur í spilarann hjá mér. Hún er e.t.v. fín fyrir þá sem eru á móti fiskveiðum og hafa gaman af því að heyra fræga leikara syngja karókí.

→ 3 ummæliFlokkun: Óflokkað

TMNT

11. apríl 2007 · Engin ummæli

TMNT“TMNT”, leikstýrð af “Kevin Munroe” er þrívíddarteiknimynd um “Teenage Mutant Ninja Turtles”. Myndin fjallar um skjaldbökurnar unga og sundrung í hópi þeirra á tímum þar sem heimsendir gæti verið í nánd. Á meðal leikara sem ljá persónum í myndinni rödd sína má nefna “Sarah Michelle Gellar”, “Patrick Stewart”, “Laurence Fishburne” og “Mako”, sem er nýlátinn.

“TMNT” inniheldur skemmtilega sögu sem mætti þó vera betur skrifuð. Þar má t.d. nefna að það kemur annkannalega fyrir sjónir að sjá þrjúþúsund ár aftur í tímann og sjá þar menn stálbrinjaða en þar sem forsaga skjaldbakanna er svo sem ekkert meistarastykki heldur lætur maður það ekki á sig fá. Allur bakgrunnur í myndinni er einstaklega vel unninn og er þar á ferð mjög vönduð vinna, hinsvegar eru frekar dúkkuleg módel notuð fyrir persónurnar. Leiklesturinn og hljóðvinnslan í myndinni eru nokkuð góð og styrkja söguna mikið.

Sem heild er myndin ágætis skemmtun, hasarmynd út í gegn.  Hún er vafalaust ekki fyrir alla en ætti að vekja áhuga þeirra sem þekkja sögu skjaldbaknanna fjögurra.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

The Illusionist

10. apríl 2007 · Engin ummæli

The Illusionist“The Illusionist” sem leikstýrð er af Neil Burger og inniheldur leikara á borð við “Edward Norton”, “Paul Giamatti”, “Rufus Sewell” og “Jessica Biel” er dramatísk og spennandi mynd um sjónhverfingamann sem fellir hug sinn til unnustu, skapmikils, krónprins Austurríkis.

Myndin er vel sett upp og vel leikin. Hún byrjar eins og hefðbundin ástarsaga en breytist svo í átt að spennumynd. Sagan er í upphafi sett upp sem fyrirsjáanleg en tekur svo skemmtilega nýja stefnu í endann. það er líka gaman að sjá hversu vel það kemst til skila hve framandi og spennandi sjónhverfingar hafa verið á þeim tíma sem myndin á að gerast.

Í það heila er “The Illusionist” fín mynd sem ætti að geta höfðað til flestra.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Tenacious D in: The Pick of Destiny

31. mars 2007 · Engin ummæli

The Pick of Destiny“Tenacious D in: The Pick of Destiny” sem leikstýrð er af “Liam Lynch” er mynd með þeim félögum “Jack Black” og Kyle Gass. Hún fjallar um þá sjálfa og hvernig hljómsveitin þeirra “Tenacious D” varð til.

Myndin er fyndin og skemmtileg en alls ekkert meistarastykki. Hún inniheldur skemmtilega géstaleikara og er alveg snarrugluð. Í myndinni má líka heyra þónokkuð af nýjustu lögum sveitarinnar og eru þau færð í sögulegt samhengi á skemmtilegan hátt.

“Tenacious D in: The Pick of Destiny” er ekki mynd fyrir alla en tvímælalaust fyrir alla unnendur hljómsveitarinnar “Tenacious D”.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

300

21. mars 2007 · Engin ummæli

300“300″, Leikstýrð af “Zack Snyder”, inniheldur ekki mikið af stórleikurum en þeir standa sig engu að síður sem slíkir. Með helstu hlutverk fara “Gerard Butler”, “Lena Headey”, “David Wenham” og “Vincent Regan”. Sagan er túlkun “Frank Miller” á bardaga Grikkja gegn Persum við fjallaskarð “Thermopylae” þar sem 300 hermenn Spörtu ásamt konungi sínum berjast gegn ofurefli Persaveldis.

“300″ er lostæti fyrir augað. Þar er engu til sparað svo að áhorfandinn fái að sökkva sér inn í framandi heim. Það hefur greinilega átt að fara vel með söguna þar sem að þrír aðilar skrifa handritið upp úr sögu “Frank Miller”. Saga “Frank Miller” er innblástur eftir að hann horfði á myndina”The 300 Spartans” frá 1962. “Gerard Butler” á heiður skilið fyrir stórleik í myndinni og nær hann alveg einstaklega vel að festa hönd á persónu “Leonidas”, konung Spörtu. Svipbrigði hans og þrumandi rödd eru einstaklega sannfærandi.

“300″ er mynd með goðsögulegum blæ og full af flottum bardögum og skemmtilegum persónum. Hún er ekki fyrir þá sem vilja bara raunsæi og kaldar sögulegar staðreyndir en ætti að vera hin mesta skemmtun fyrir hina.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Laberinto del Fauno, El (Pan’s Labyrinth)

14. mars 2007 · Engin ummæli

Pan's Labyrinth“Pan’s Labyrinth” er stórmynd sem leikstýrð er af, hinum skemmtilega,”Guillermo del Toro”. Í helstu hlutverkum eru “Ivana Baquero”, “Sergi López” og “Maribel Verdú”. Myndin fjallar um unga stúlku sem er stúpdóttir grimms hershöfðingja á valdatíma “Franco” á Spáni, í seinniheimstyrjöldinni . Stjúpfaðirinn vinnur að því að útrýma andspyrnuhreyfingunni á meðan móðir stúlkunnar er komin að því að eiga bróður hennar. Allt í einu opnast töfraheimur fyrir stúlkunni og undarlegir hlutir fara að eiga sér stað.

Hinir spænsku leikarar standa sig með stakri príði og sýna svo um muna að það er fullt af góðum leikurum þarna úti þó þeir séu ekki að vinna í Hollywood. Þó má sérstaklega nefna “Ivana Baquero” sem leikur, stelpuna, “Ofelia”, því hún fer með stórleik í myndinni þó ung sé að árum. Myndin er konfektkassi fyrir augað og hleypir manni ekki frá sér í eina mínútu af ótta við að missa af einhverjum molanum. Sagan er einskonar “Goth” útgáfa af “Lísu í undralandi” eða “The Never Ending Story”og er söguþráðurinn mjög góður í kringum ævintýri stúlkunnar en dalar aðeins í kringum baksöguna. “Guillermo del Toro” er snillingur þegar kemur að sjónrænni útfærslu og þar er ekki yfir neinu að kvarta.

Í heildina er “Pan’s Labyrinth” einstaklega skemmtileg mynd og ætti að innihalda eitthvað fyrir alla. Þetta er tvímælalaust saga sem að á eftir að rata í DVD-spilarann aftur og aftur…

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

The Devil Wears Prada

8. mars 2007 · 1 ummæli

The Devil Wears Prada“The Devil Wears Prada”, sem leikstýrð er af David Frankel og inniheldur leikara á borð við Meryl Streep, Anne Hathaway og Stanley Tucci, er ekki mynd sem ég hefði valið mér sjálfur en er þó ágætis afþreyging. Myndin fjallar um Andy Sachs ,Anne Hathaway, sem er að reyna að koma sér í fréttamennsku. Henni býðst staða hjá tískufyrirtæki, sem ritari og sér það fyrir sér sem tækifæri til þess að vinna sig upp í það að verða fréttakona. Starfið reynist síður en svo dans á rósum og leiðir hana í óvæntar áttir.

“The Devil Wears Prada” er einskonar nútímaútfærsla af Öskubusku. Söguþráðurinn er ekki mjög djúpur en myndin inniheldur fullt af skemmtilegum glósum um tískubransann og er sæmilega leikin. Hreint ekkert meistarastykki en hefur ágætis skemmtanagildi.

Fín mynd fyrir pör sem eru að leita sér að mynd til þess að geta bæði horft á saman.

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

Rome, Sería 2

28. febrúar 2007 · Engin ummæli

Nú eru hinir gríðarvinsælu þættir, frá “HBO”, “Rome” sería 2, komnir í birtingu úti og ekki lang til þess að bíða að þeir komi hingað til lands. Fyrir þá sem sáu fyrri seríuna getur þetta ekki verið annað en mikið gleðiefni þar sem þessir þættir eru gríðarvandaðir og ekkert verið að skafa af hlutunum.

Fyrir þá sem ekki vita þá fjalla þættirnir um Rómaveldi til forna og eru áhorfendur leiddir í gegnum hið daglega líf hjá sögufrægum persónum á borð við Júlíus Sesar. Félagarnir Lucius Vorenus og Titus Pullo, upphaflega hermenn Rómaveldis, eru óbeinir sögumenn þar sem áhorfendur eru látnir fylgja þeim og þeir látnir taka þátt í öllum helstu atburðum þessa tíma.

Þættirnir eru vel leiknir og virkilega vandaðir, sannkallað augnayndi. Ég mæli eindregið með þessum þáttum og hlakka mikið til að fylgjast með seríu 2.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað