Rome, Sería 2 | Kvikmyndir og þættir

Kvikmyndir og þættir

Kvikmyndir og þættir haus 2

Rome, Sería 2

28. febrúar 2007 · Engin ummæli

Nú eru hinir gríðarvinsælu þættir, frá “HBO”, “Rome” sería 2, komnir í birtingu úti og ekki lang til þess að bíða að þeir komi hingað til lands. Fyrir þá sem sáu fyrri seríuna getur þetta ekki verið annað en mikið gleðiefni þar sem þessir þættir eru gríðarvandaðir og ekkert verið að skafa af hlutunum.

Fyrir þá sem ekki vita þá fjalla þættirnir um Rómaveldi til forna og eru áhorfendur leiddir í gegnum hið daglega líf hjá sögufrægum persónum á borð við Júlíus Sesar. Félagarnir Lucius Vorenus og Titus Pullo, upphaflega hermenn Rómaveldis, eru óbeinir sögumenn þar sem áhorfendur eru látnir fylgja þeim og þeir látnir taka þátt í öllum helstu atburðum þessa tíma.

Þættirnir eru vel leiknir og virkilega vandaðir, sannkallað augnayndi. Ég mæli eindregið með þessum þáttum og hlakka mikið til að fylgjast með seríu 2.

Flokkun: Óflokkað

Engin ummæli fram að þessu ↓

  • Engin ummæli ennþá...Fylltu út reitina hér fyrir neðan og vertu fyrstur.

Rita ummæli