“Pan’s Labyrinth” er stórmynd sem leikstýrð er af, hinum skemmtilega,”Guillermo del Toro”. Í helstu hlutverkum eru “Ivana Baquero”, “Sergi López” og “Maribel Verdú”. Myndin fjallar um unga stúlku sem er stúpdóttir grimms hershöfðingja á valdatíma “Franco” á Spáni, í seinniheimstyrjöldinni . Stjúpfaðirinn vinnur að því að útrýma andspyrnuhreyfingunni á meðan móðir stúlkunnar er komin að því að eiga bróður hennar. Allt í einu opnast töfraheimur fyrir stúlkunni og undarlegir hlutir fara að eiga sér stað.
Hinir spænsku leikarar standa sig með stakri príði og sýna svo um muna að það er fullt af góðum leikurum þarna úti þó þeir séu ekki að vinna í Hollywood. Þó má sérstaklega nefna “Ivana Baquero” sem leikur, stelpuna, “Ofelia”, því hún fer með stórleik í myndinni þó ung sé að árum. Myndin er konfektkassi fyrir augað og hleypir manni ekki frá sér í eina mínútu af ótta við að missa af einhverjum molanum. Sagan er einskonar “Goth” útgáfa af “Lísu í undralandi” eða “The Never Ending Story”og er söguþráðurinn mjög góður í kringum ævintýri stúlkunnar en dalar aðeins í kringum baksöguna. “Guillermo del Toro” er snillingur þegar kemur að sjónrænni útfærslu og þar er ekki yfir neinu að kvarta.
Í heildina er “Pan’s Labyrinth” einstaklega skemmtileg mynd og ætti að innihalda eitthvað fyrir alla. Þetta er tvímælalaust saga sem að á eftir að rata í DVD-spilarann aftur og aftur…
Engin ummæli fram að þessu ↓
Engin ummæli ennþá...Fylltu út reitina hér fyrir neðan og vertu fyrstur.
Rita ummæli