“300″, Leikstýrð af “Zack Snyder”, inniheldur ekki mikið af stórleikurum en þeir standa sig engu að síður sem slíkir. Með helstu hlutverk fara “Gerard Butler”, “Lena Headey”, “David Wenham” og “Vincent Regan”. Sagan er túlkun “Frank Miller” á bardaga Grikkja gegn Persum við fjallaskarð “Thermopylae” þar sem 300 hermenn Spörtu ásamt konungi sínum berjast gegn ofurefli Persaveldis.
“300″ er lostæti fyrir augað. Þar er engu til sparað svo að áhorfandinn fái að sökkva sér inn í framandi heim. Það hefur greinilega átt að fara vel með söguna þar sem að þrír aðilar skrifa handritið upp úr sögu “Frank Miller”. Saga “Frank Miller” er innblástur eftir að hann horfði á myndina”The 300 Spartans” frá 1962. “Gerard Butler” á heiður skilið fyrir stórleik í myndinni og nær hann alveg einstaklega vel að festa hönd á persónu “Leonidas”, konung Spörtu. Svipbrigði hans og þrumandi rödd eru einstaklega sannfærandi.
“300″ er mynd með goðsögulegum blæ og full af flottum bardögum og skemmtilegum persónum. Hún er ekki fyrir þá sem vilja bara raunsæi og kaldar sögulegar staðreyndir en ætti að vera hin mesta skemmtun fyrir hina.
Engin ummæli fram að þessu ↓
Engin ummæli ennþá...Fylltu út reitina hér fyrir neðan og vertu fyrstur.
Rita ummæli