“Tenacious D in: The Pick of Destiny” sem leikstýrð er af “Liam Lynch” er mynd með þeim félögum “Jack Black” og Kyle Gass. Hún fjallar um þá sjálfa og hvernig hljómsveitin þeirra “Tenacious D” varð til.
Myndin er fyndin og skemmtileg en alls ekkert meistarastykki. Hún inniheldur skemmtilega géstaleikara og er alveg snarrugluð. Í myndinni má líka heyra þónokkuð af nýjustu lögum sveitarinnar og eru þau færð í sögulegt samhengi á skemmtilegan hátt.
“Tenacious D in: The Pick of Destiny” er ekki mynd fyrir alla en tvímælalaust fyrir alla unnendur hljómsveitarinnar “Tenacious D”.
Engin ummæli fram að þessu ↓
Engin ummæli ennþá...Fylltu út reitina hér fyrir neðan og vertu fyrstur.
Rita ummæli