“The Illusionist” sem leikstýrð er af Neil Burger og inniheldur leikara á borð við “Edward Norton”, “Paul Giamatti”, “Rufus Sewell” og “Jessica Biel” er dramatísk og spennandi mynd um sjónhverfingamann sem fellir hug sinn til unnustu, skapmikils, krónprins Austurríkis.
Myndin er vel sett upp og vel leikin. Hún byrjar eins og hefðbundin ástarsaga en breytist svo í átt að spennumynd. Sagan er í upphafi sett upp sem fyrirsjáanleg en tekur svo skemmtilega nýja stefnu í endann. það er líka gaman að sjá hversu vel það kemst til skila hve framandi og spennandi sjónhverfingar hafa verið á þeim tíma sem myndin á að gerast.
Í það heila er “The Illusionist” fín mynd sem ætti að geta höfðað til flestra.
Engin ummæli fram að þessu ↓
Engin ummæli ennþá...Fylltu út reitina hér fyrir neðan og vertu fyrstur.
Rita ummæli