“Happy Feet” sem leikstýrð er af “George Miller” er dans og söngvamynd í þrívídd og fjallar um mörgæs sem fæðist öðruvísi en allar hinar og mætir því fordómum og skilningsleysi. Heimur mörgæsanna snýst um söng en þessi unga mörgæs getur ekki sungið en hefur hins vegar hæfileika til að dansa. Leiklesarar myndarinnar eru flestir stór Hollywood nöfn.
“Happy Feet” er mjög vel útfærð myndrænt og ekki hægt annað en að dást af því hversu vel hún er gerð þannig. Einnig hefur ekki verið leitað til neinna nýgræðinga til þess að sjá um leiklestur í myndinni og er heldur ekki yfir neinu að kvarta þar. En þá eru líka gullhamrarnir endanlega upptalnir. Myndinni skortir frumleika og er ekkert lag samið sérstaklega fyrir myndina þrátt fyrir það að söngurinn eigi einna stærsran þátt í myndinni. Söguþráðurinn er illa úthugsaður. Myndin byrjar sem létt söngvamynd sem fær svo sífellt þyngri undirtón þar til hann er orðinn að aðalatriði. Í endan er myndin orðinn eins og illa ígrundaður grænfriðungaáróður sem bíður ekki upp á neinar tillögur til lausnar. Þegar myndin var tæplega hálfnuð var ég farinn að bíða eftir endanum. Ég get hreint ekki ímyndað mér að krakkar endist yfir þessari mynd til enda.
“Happy Feet” er mynd sem ég held að rati ekki aftur í spilarann hjá mér. Hún er e.t.v. fín fyrir þá sem eru á móti fiskveiðum og hafa gaman af því að heyra fræga leikara syngja karókí.
3 ummæli fram að þessu ↓
hestia // 16. apríl 2007 kl. 1.20
:) Vá hvað ég er ósammála þér.
Mér finnst myndin vera með fullt af skilaboðum um það hvernig við mannfólkið komum fram hvort við annað.
Ég naut myndarinnar allan tímann, fyrir utan skrítna klippingu þegar að farið er frá dýragarðinum aftur á suðurpólinn.
Frábær húmor, skemmtileg lög og dans
Ég 3 börn á aldrinum unglingur og niður í mun yngra og þau hafa öll gaman af myndinni, enda er nokkuð oft horft á hana hér
Ég mæli með “Happy feet” fyrir alla.
Örvar // 17. apríl 2007 kl. 0.03
Ég er sammála dóminum. Þetta er leiðindar mynd — mig minnir að það hafi verið tveir brandarar sem ég gat brosað af. Steppdansinn var alveg óttarlega leiðinlegur. Krakkarnir mínir voru þó ánægðari með hana — líklegast vegna söngsins.
hjallinn // 23. apríl 2007 kl. 23.23
Það gleður mig að sjá að ekki allir eru á sömu skoðun og ég. Það væri hrikalega leiðinlegt að allir væru alltaf sammála. En það er góður punktur hjá ykkur að myndin hitti börn vel fyrir í gegnum tónlistina.
Rita ummæli