Kvikmyndir og þættir

Kvikmyndir og þættir

Kvikmyndir og þættir haus 1

Night at the Museum

18. febrúar 2007 · Engin ummæli

Night at the Museum“Night at the Museum” sem leikstýrð er af Shawn Levy kom skemmtilega á óvart með leikaravali. Þar voru komnir aftur leikarar sem ég hef ekki séð á hvítatjaldinu lengi. Nefnilega Dick Van Dyke og Mickey Rooney. Ásamt þeim voru t.d. leikarar eins og Ben Stiller, Robin Williams, Ricky Gervais og Owen Wilson. Myndin fjallar um vonlausan pabba sem hefur ekki verið í fastri vinnu í langan tíma. Hann er loks ráðinn sem næturvörður í Minjasafni en þar gerast undarlegir hlutir þegar nóttin skellur á.

“Night at the Museum” er formúlumynd og er sett upp á sama hátt og ótal aðrar bíómyndir. Það sem gerir hana skemmtilega eru fjöldi skemmtilegra leikara og fjölmargar skemmtilegar tilvitnanir sem flestir ættu að kannast við. Með því að staðsetja söguna í minjasafni opnast endalausir möguleikar á skemmtilegri persónusköpun. Þetta er ein af þessum myndum þar sem að um augljósa formúlu er að ræða en einhvern vegin er manni alveg sama. Hún krefur ekki um djúpan þankagang og skilur ekki eftir sig margar spurningar en er fyndin og ætti að skilja eftir bros.

Myndi er fín fjölskyldumynd sem ætti að höfða til áhorfenda á öllum aldri.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

My Super Ex-Girlfriend

12. febrúar 2007 · Engin ummæli

My Super Ex-Girlfriend“My super Ex-Girlfriend”, sem leikstýrð er af Ivan Reitman, inniheldur ekki verri leikara en Uma thurman, Luke Wilson og Eddie Izzard svo einhverjir séu nefndir, er hraðsoðin gamanmynd sem fjallar um mann sem kemst að því að hann er að fara út með ofurhetju. Vandræðin byrja fyrst fyrir alvöru þegar hann vill segja ofurhetjunni upp sem er ekki alveg á sama máli.

Myndin “My Super Ex-Girlfriend” ágætis skemmtun ef að ekki er verið að sækjast eftir djúpum söguþræði. Þetta er, eins og svo margar gamanmyndir, mynd sem rennur auðveldlega í gegn og færir á mann bros en skilur ekki mikið eftir sig. Það er ekki hægt að setja mikið út á leikinn í myndinni því hann rímar bara nokkuð vel við söguþráðinn.

“My Super Ex-Girlfriend” er að mínu mati fín mynd til að horfa á eftir erfiðan dag eða eftir eitthvað krefjandi verk af því að hún er mjög létt, færir á mann bros og það tekur um 0,001% af heilastarfsemi í að melta hana

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

The New World

3. febrúar 2007 · Engin ummæli

The_New_World“The New World”, sem leikstýrð er af Terrence Malick og skartar leikurum á borð við Colin Farrell, Christian Bale og Christopher Plummer er ný túlkun á sögu John Smith og Pocahontas.

Myndin er mjög vel gerð útlitslega og er ekki yfir neinu að kvarta þar. Leikurinn er einnig nokkuð góður en handritið er frekar tilburðarlítið. Ég verð að viðurkenna að ég var einn af þeim sem gekk inn á leigu sá hulstur sem virtist geta verið spennandi en þegar heim var komið brá mér þegar ég komst að því að ég hafði tekið mynd um Pocahontas. Myndin náði mér aldrei og má eiginlega segja að ég hafi beðið í 130 mín. eftir að eitthvað gerðist.

“The New World”, virkaði á mig sem bíómynd á borð við “Dances with Wolves”. Mjög löng og lítið að gerast. Mikil áhersla lögð á eymd og volæði. Ekki mynd fyrir hvern sem er.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Monster House

3. febrúar 2007 · Engin ummæli

“Monster House” er 3-D teiknimynd sem er leikstýrð af Gil Kenan. Myndin fjallar um táninga sem komast að því að það er andsetið hús í götunni en engin trúir þeim. Eitthvað verður að gera og þau ein verða að bjarga málunum.

Myndin er ágætis skemmtun, fín spennumynd fyrir krakka en þó myndi ég ekki sýna hana krökkum yngri en 8 ára, þó hún sé leyfð til sýningar öllum aldurshópum. Myndin heldur börnunum spenntum í sætunum og stöku bröndurum er laumað inn fyrir foreldrana.

Það sem helst vakti undrun hjá mér að hreifingarnar á persónum voru á köflum ekki góðar og þótti mér það mjög leitt þar sem að 3-D tæknin er lengra komin. Framleiðendur á borð við Pixar og Dreamworks hafa margsýnt það og sannað.

Leiklesturinn var bara nokkuð góður og voru þar leikarar á borð við Steve Buscemi, Jason Lee og Kevin James.

Sem sagt í heildina litið ágætis afþreiging en ekkert meistarastykki.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

The Sentinel

25. janúar 2007 · Engin ummæli

The Sentinel, sem skartar leikurum á borð við Michael Douglas, Kiefer Sutherland og Eva Longoria, kom nýverið út á DVD. Bíómyndin fjallar um leyniþjónustumenn í þjónustu Hvítahússins og tilræði gegn lífi forseta Bandaríkjana.

Ég var búinn að sjá trailer sem virkaði vel á mig og gaf til kynna að söguþráðurinn gæti e.t.v. verið þykkri en í meðal Hollywood-mynd. Raunin var því miður önnur . Það var engu líkara en að þeir sem sáu um gerð trailersins hafi ekki fengið að sjá myndina því hann gefur mjög ranga mynd af bíómyndinni. Andrúmsloft trailersins er gjörsamlega annað en myndarinnar. Ég var líka að vonast til að þar sem Kiefer Sutherland leikur í myndinni að hún væri ekki alveg svona hrein og bein. Þetta hefði allt eins getað verið einn af þessum milljón lögguþáttum sem maður sér á öllum stöðum, á öllum kvöldum, alls staðar. Tilfinningin leyndi sér ekki, að mér fannst eins og ég hefði horft á þessa mynd áður.

Semsagt þunnur söguþráður þar sem leikararnir eiga þess ekki kost að komast á almennilegt flug og grípa mann. Hafði ekki upp á neitt nýtt að bjóða. Ef þú hefur gaman af því að horfa á alla þessa lögguþætti sem eru í gangi í sjónvarpinu gæti þessi mynd verið hin ágætasta afþreiging en ekki búast við meistarastykki.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Kynning

18. janúar 2007 · 2 ummæli

Í bloggfærslunum mínum ætla ég að fjalla um nýjar kvikmyndir og þætti. Farið verður yfir það í stuttu máli um hvað umfjöllunarefnið hverju sinni er og hverjir leika. Mest mun ég þó leggja áherslu á að segja mína skoðun á efninu og gagnrýna það. Lesendur eru kvattir til þess að tjá sig ef þeir hafa skoðun, hvort sem þeir eru sammála eður ey.

→ 2 ummæliFlokkun: Óflokkað